Hvenær hefst þessi viðburður:
27. febrúar 2014 - 9:00
Nánari staðsetning:
KPMG í Borgartúni 27

KPMG og Félagsvísindasvið Háskóla Íslands kynna nú í þriðja sinn niðurstöður Könnunar meðal stjórnarmanna. Könnunin var fyrst lögð fyrir íslenska stjórnarmenn árið 2011 og hefur það að markmiði að kortleggja nokkur lykilatriði varðandi stjórnarmenn og störf stjórna á Íslandi.
Meginmarkmið með könnuninni er að kanna starfshætti og starfsumhverfi stjórna, samskipti, reynslu og menntun stjórnarmanna og viðhorf til samsetningar stjórna. Ennfremur er markmiðið að kortleggja viðhorf til laga um 40% lágmarkshlutfall hvors kyns í stjórnum sem tóku gildi 1. september 2013.
Alls fengu 905 einstaklingar þátttökubeiðni og tóku 339 stjórnarmenn þátt í könnuninni. Svarhlutfallið var því 37%. Um er að ræða stjórnarmenn hjá framleiðslu- og þjónustufyrirtækjum sem eru á lista Frjálsrar verslunar yfir 300 stærstu fyrirtækin á Íslandi árið 2012, ásamt stjórnarmönnum lífeyrissjóða, fjármálafyrirtækja og vátryggingafélaga.
KPMG og Félagsvísindasvið Háskóla Íslands standa fyrir morgunverðarfundi fimmtudaginn 27. febrúar kl. 9 – 10 í húsakynnum KPMG í Borgartúni 27 þar sem helstu niðurstöður könnunarinnar verða kynntar.
Dagskrá:
Ávarp
Frosti Ólafsson framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands
Niðurstöður Könnunar stjórnarmanna
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá KPMG og Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor í félagsfræði, Háskóla Íslands
Innslag frá aðilum úr íslensku atvinnulífi
Heiðrún Jónsdóttir, héraðsdómslögmaður og stjórnarformaður Gildis lífeyrissjóðs og Norðlenska
Tryggvi Pálsson, formaður bankaráðs Landsbanka Íslands
Þátttaka er án endurgjalds.