
Brynhildur Thors ver ritgerð sína: „Boðferli í æðaþeli tengd histamín og thrombín miðlaðri NO-myndun: Hlutverk AMP-örvaðs prótein kínasa“
Andmælendur eru dr. Neil Ruderman, prófessor við Boston University School of Medicine, og dr. Ingibjörg Harðardóttir, prófessor við Læknadeild.
Leiðbeinandi var dr. Haraldur Halldórsson, lífefnafræðingur hjá Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, og umsjónarkennari dr. Guðmundur Þorgeirsson, prófessor í lyflækningum við Læknadeild.
Dr. Magnús Karl Magnússon, forseti Læknadeildar, stjórnar athöfninni.
Um rannsóknina:
Heilbrigt æðaþel er forsenda þess að viðhalda eðlilegri starfsemi æðakerfisins. Á hinn bóginn er vanstarfsemi æðaþelsins lykilþáttur í tilurð ýmissa sjúkdóma sem tengjast hjarta- og æðakerfinu. Síðustu ár hefur athygli beinst að þeim boðleiðum sem miðla viðbrögðum frumnanna við breytingum í umhverfinu. Eitt af lykilviðbrögðum æðaþelsins við breytingum í umhverfi frumnanna er framleiðsla nitur oxíðis (NO) úr arginíni sem á sér stað fyrir tilstuðlan ensímsins eNOS (endothelial NO-synthase). Aðalmarkmið verkefnisins var að auka skilning okkar á þeim líffræðilegu og lífeðlisfræðilegu eiginleikum æðaþelsins sem tengjast starfsemi eNOS. Við sóttumst sér í lagi eftir því að varpa ljósi á þær boðleiðir sem miðla örvun á æðaþelinu eftir meðhöndlun frumnanna með G-prótein tengdu boðefnunum þrombíni og histamíni með sérstakri áherslu á hlutverk AMP-örvaða prótein kínasans AMPK í að viðhalda eðlilegri framleiðslu nitur oxíðs. Niðurstöðurnar hafa verið birtar í fjórum tímaritsgreinum þar sem sýnt er fram á hlutverk AMPK í áður óþekktri boðleið frá G-prótein tengdum viðtökum að eNOS við þær ætisaðstæður þar sem lækkun verður á innanfrumustyrk ATP við meðferð. Sú mikilvæga uppgötvun að umhverfisaðstæður ráði því hvaða boðleið virkjast í frumunni er áhugaverð og ekki síst lykilhlutverk orkumiðilsins ATP en lækkun á innanfrumu ATP er vel þekkt afleiðing í sjúklegum aðstæðum eins og blóðþurrð, súrefnisskorti og í sýkingum.
Verkefnið var unnið á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði. Doktorsnefndin var skipuð þeim Magnúsi Jóhannssyni prófessor emeritus, Sigríði Valgeirsdóttur og Gunnari Sigurðssyni prófessor. Leiðbeinendur voru Guðmundur Þorgeirsson prófessor og Haraldur Halldórsson.
Um doktorsefni:
Brynhildur fæddist árið 1975. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1994, BS í líffræði frá Raunvísindadeild Háskóla Íslands árið 2001 og BS í læknisfræði frá Læknadeild H.Í. árið 2013. Hún hefur lagt stund á doktorsnám við Læknadeild H.Í. frá árinu 2002.