Clik here to view.

Dagana 30. og 31 janúar verður haldið málþing í Háskóla Íslands um norrænt lýðræði. Markmið þessa þverfaglega málþings er að skoða tengsl valds og lýðræðis á Norðurlöndum og bera saman lýðræðislega innviði þessara landa.
Málþingið er hluti rannsóknarverkefnis Siðfræðistofnunar How Does Democracy Work in Iceland? Practices, Norms and Understanding. Í verkefninu eru íslenskar lýðræðishugmyndir, ríkjandi skilningur, starfsvenjur og gildi, rannsakaðar út frá þrískiptingu þýska heimspekingsins Jürgens Habermas á frjálslyndu, lýðveldissinnuðu og rökræðumiðuðu lýðræði. Tilgátan er sú að íslensk stjórnmálasaga frá lýðveldisstofnun byggi á blöndu af frjálslyndum og lýðveldissinnuðum skilningi á lýðræði. Rökræðumiðaður skilningur hafi á hinn bóginn verið sniðgenginn og það geti skýrt margt af því sem stendur íslensku lýðræði fyrir þrifum bæði fyrir og eftir hrun fjármálakerfisins.
Verkefnið byggir á þverfaglegri nálgun, sem sækir m.a. til siðfræði, stjórnmálafræði, stjórnsýslufræði, fjölmiðlafræði og kenninga um lýðræðismenntun. Rannsókninni er ætlað að greina bæði þau ferli sem voru hvað mest áberandi í stjórnmálum og stjórnsýslu fram að falli bankanna og þá félagslegu og stjórnmálalegu kreppu sem fylgdi í kjölfarið.
Opnunarfyrirlestur verður haldinn í Odda 101 fimmtudaginn 30. janúar klukkan 17.30, en þá mun Jørgen Goul Andersen, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann í Álaborg, halda erindi sem nefnist Lessons from the study of power and democracy in Denmark.
Málþingið fer svo fram í Aðalbyggingu Háskóla Íslands föstudaginn 31. janúar, stofu 052 (09.00–12.00) og stofu 225 (13.00–17.00).
Þau sem koma fram á málþinginu eru:
Vilhjálmur Árnason, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild HÍ
Guðmundur Jónsson, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild HÍ
Pouli Kettunen, prófessor við Háskólann í Helsinki
Ragnheiður Kristjánsdóttir, lektor við Sagnfræði- og heimspekideild HÍ
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor við Stjórnmálafræðideild HÍ
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, lektor við Stjórnmálafræðideild HÍ
Lars-Åke Engblom, prófessor við Háskólann í Jönköping
Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar HÍ
Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu mun stýra umræðum í lok málþingsins. Með henni í pallborði verða þau Hulda Þórisdóttir, Páll Þórólfsson og Bryndís Hlöðversdóttir.
Dagskráin fer fram á ensku og er málþingið öllum opið meðan húsrúm leyfir.