Hvenær hefst þessi viðburður:
8. ágúst 2013 - 16:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Hátíðarsalur

Ashley T Haase, prófessor við Minnesotaháskóla heldur minningarfyrirlestur um Björn Sigurðsson, fyrsta forstöðumann Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, en í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu Björns.
Björn Sigurðsson ávann sér alþjóðlega viðurkenningu fyrir rannsóknir sínar á mæði-visnuveirunni og kenningar um hæggenga smitsjúkdóma. Mæði-visnuveiran er náskyld eyðniveirunni (HIV), og tilheyra þessar veirur báðar flokki lentiveira, en lentiveirur draga nafn sitt af kenningum Björns (lentus=hægur).
Eftir fyrirlesturinn verður boðið upp á léttar veitingar.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

