Clik here to view.

Boðferli í æðaþeli tengd histamín og thrombín miðlaðri NO-myndun: Hlutverk AMP-örvaðs próteins kínasa.
Heilbrigt æðaþel er forsenda þess að viðhalda eðlilegri starfsemi æðakerfisins. Á hinn bóginn er vanstarfsemi æðaþelsins lykilþáttur í tilurð ýmissa sjúkdóma sem tengjast hjarta- og æðakerfinu. Síðustu ár hefur athygli beinst að þeim boðleiðum sem miðla viðbrögðum frumnanna við breytingum í umhverfinu. Eitt af lykilviðbrögðum æðaþelsins við breytingum í umhverfi frumnanna er framleiðsla nitur oxíðis (NO) úr arginíni sem á sér stað fyrir tilstuðlan ensímsins eNOS (endothelial NO-synthase). Aðalmarkmið verkefnisins var að auka skilning okkar á þeim líffræðilegu og lífeðlisfræðilegu eiginleikum æðaþelsins sem tengjast starfsemi eNOS. Við sóttumst sér í lagi eftir því að varpa ljósi á þær boðleiðir sem miðla örvun á æðaþelinu eftir meðhöndlun frumnanna með G-prótein tengdu boðefnunum þrombíni og histamíni með sérstakri áherslu á hlutverk AMP-örvaða prótein kínasans AMPK í að viðhalda eðlilegri framleiðslu nitur oxíðs. Niðurstöðurnar hafa verið birtar í fjórum tímaritsgreinum þar sem sýnt er fram á hlutverk AMPK í áður óþekktri boðleið frá G-prótein tengdum viðtökum að eNOS við þær ætisaðstæður þar sem lækkun verður á innanfrumustyrk ATP við meðferð. Sú mikilvæga uppgötvun að umhverfisaðstæður ráði því hvaða boðleið virkjast í frumunni er áhugaverð og ekki síst lykilhlutverk orkumiðilsins ATP en lækkun á innanfrumu ATP er vel þekkt afleiðing í sjúklegum aðstæðum eins og blóðþurrð, súrefnisskorti og í sýkingum.
Verkefnið var unnið á Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði. Doktorsnefndin var skipuð þeim Magnúsi Jóhannssyni prófessor emeritus, Sigríði Valgeirsdóttur og Gunnari Sigurðssyni prófessor. Leiðbeinendur voru dr. Guðmundur Þorgeirsson prófessor og dr. Haraldur Halldórsson, lífefnafræðingur hjá rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði.