
Hvernig getur örþjóð eins og Ísland eignast íþróttalandslið í fremstu röð í öllum sínum helstu hópíþróttum - og það á sama tíma?
Félagsfræðingurinn Viðar Halldórsson hefur nýlokið við gerð rannsóknar sem ætlað var að svara þeirri spurningu og eru niðurstöðurnar að finna í nýútkominni bók: "Sport in Iceland: How small nations achieve international success."
Í tilefni af útkomu bókarinnar mun Viðar kynna helstu niðurstöður rannsóknarinnar í fyrirlestrinum sem er á vegum námsbrautar í Félagsfræði við Háskóla Íslands.
Viðar Halldórsson er með doktorspróf í félagsfræði og starfar sem lektor við Háskóla Íslands. Hann hefur á undanförnum árum stundað rannsóknir á því hvernig árangur einstaklinga og hópa/liða mótast af hinu félagslega umhverfi og birt rannsóknir þess efnis í ýmsum fræðitímaritum. Viðar hefur jafnframt sinnt ráðgjöf fyrir íslensk félagslið og landslið í ýmsum íþróttum.
Aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir.