Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Samtal við samfélagið: Íslenska íþróttaundrið

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. maí 2017 - 16:30 til 17:45
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 101
Viðar Halldórsson
Hvernig getur örþjóð eins og Ísland eignast íþróttalandslið í fremstu röð í öllum sínum helstu hópíþróttum - og það á sama tíma? Félagsfræðingurinn Viðar Halldórsson hefur nýlokið við gerð rannsóknar sem ætlað var að svara þeirri spurningu og eru niðurstöðurnar að finna í nýútkominni bók „Sport in Iceland: How small nations achieve international success“.
 
Í tilefni af útkomu bókarinnar mun Viðar kynna helstu niðurstöður rannsóknarinnar í opnum fyrirlestri í Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn verður haldinn þriðjudaginn 9. maí, kl. 16.30-17.45 í sal 101 í Odda í Háskóla Íslands.
 
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröðinni, Samtal við Samfélagið: Fyrirlestraröð í félagsfræði, sem er samstarfsverkefni Félagsfræðingafélags Íslands og námsbrautar í félagsfræði við Háskóla Íslands, aðgangur er ókeypis og eru allir velkomnir. Bókin verður jafnframt til sölu í Bóksölu Stúdenta.
 
Viðar Halldórsson er með doktorspróf í félagsfræði og starfar sem lektor við Háskóla Íslands. Hann hefur á undanförnum árum stundað rannsóknir á því hvernig árangur einstaklinga og hópa/liða mótast af hinu félagslega umhverfi og birt rannsóknir þess efnis í ýmsum fræðitímaritum. Viðar hefur jafnframt sinnt ráðgjöf fyrir íslensk félagslið og landslið í ýmsum íþróttum.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012