
Mánudaginn 3. apríl klukkan 12 flytur TJ Boisseau, prófessor við Purdue Háskóla, fyrirlestur á vegum Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands sem hún nefnir:
„Women with the World at their Feet: Visualizing Gender at American World’s Fairs and Expositions”
Fyrirlesturinn fer fram í stofu 220 í Aðalbyggingu og allir eru velkomnir, meðan húsrúm leyfir.
TJ Boisseau lýsir fyrirlestrinum svo: „In this lecture on the disposition of women’s beauty at American world’s fairs and international exhibitions, I shall document two parallel but interdependent deployments of white and non-white women’s physical presence and bodily images in the design of iconic exposition art and objects.”
TJ Boisseau er Fulbright sérfræðingur og gestaprófessor við Jafnréttisskóla Sameinuðu þjóðanna UNU-Gest og Sagnfræði og heimspekideild Háskóla Íslands á vorönn 2017. Hún er prófessor og forstöðumaður náms í kvenna-, kynja- og kynfræði við Purdue-háskóla í Bandaríkjunum þar sem hún kennir námskeið á sviði feminískrar sögu, kyngervis, kynþátta og menningarsögu. Hún er með doktorspróf frá Binghamtonháskóla í New York (Suny Binghamton) og helstu rannsóknarefni hennar – t.a.m. bókin White Queen: May French-Sheldon and the Imperial Origins of American Feminist identity (2004) – varða sögulega mótun amerísks femínisma og sjálfsmynda í fjölþjóðlegu samhengi. Árið 2010 kom út undir ritstjórn hennar bókin Gendering the Fair: Histories of Women and Gender at World’s Fairs (2010).