Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Fyrirlestur: „Það er enginn Emin Pasha: Stjörnur nýlendutímans og átökin um hvíta karlmennsku í Afríku á seinni hluta 19. aldar“

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. mars 2017 - 12:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 220
Háskóli Íslands

Mánudaginn 27. mars klukkan 12 flytur Kirk A. Hoppe, dósent við University of Illinois í Chicago fyrirlestur á vegum Sagnfræðistofnunar Háskóla Íslands sem hann nefnir:

„There is no Emin Pasha:  Colonial celebrity and the contest over white masculinity in late 19th-century Africa”

Fyrirlesturinn fer fram í stofu 220 í Aðalbyggingu og allir eru velkomnir, meðan húsrúm leyfir.

Kirk A. Hoppe lýsir fyrirlestrinum svo:  “This lecture illumines colonial investments in whiteness and masculinity as represented and embodied divergently by Henry Stanley and Emin Pasha in the explosion of literary production prompted by their storied 1887 encounter in the Sudan.” 

Kirk Arden Hoppe er Fulbright sérfræðingur og gestaprófessor við Jafnréttisskóla Sameinuðu þjóðanna UNU-Gest og Sagnfræði og heimspekideild Háskóla Íslands, en gegnir annars stöðu dósents í heimssögu og sögu Afríku. Kirk er með doktorsgráðu frá Boston University en í rannsóknum sínum hefur hann meðal annars fengist við munnlega sögu meðal íbúa við Lake Victoria í Austur Afríku. Í bók sinni, Lords of the Fly:  Sleeping Sickness Control in East Africa (Heinemann 2004) rannsakar Kirk hvernig sóttvarnir Breta tóku á sig mynd félagslegrar og umhverfisfræðilegrar stýringar á nýlendutímanum. Um þessar mundir vinnur Kirk að rannsókn á nítjándu aldar þýsk-ottómanska náttúrufræðingnum og embættismanninum Emin Pasha og þá sérstaklega mótun Pasha sem opinberrar persónu og minningarsköpun í því samhengi. Emin Pasha hóf feril sinn sem heilbrigðisfulltrúi í Evrópu en varð síðar landstjóri í Suður Súdan. Þekkastur er hann líklega fyrir að hafa verið „bjargað“ af hinum heimsþekkta landkönnuði Henry Stanley.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012