Hvenær hefst þessi viðburður:
16. mars 2017 - 16:00 til 18:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Fyrirlestrasalur

Praktík Péturs er heiti á málstofu fimm guðfræðinga sem haldin verður í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins fimmtudaginn 16. mars klukkan 16.00-18.00. Flutt verða fimm erindi um nýjar rannsóknir í praktískri guðfræði. Málstofan er til heiðurs dr. Pétri Péturssyni prófessor.
Verið hjartanlega velkomin að koma og hlusta á mjög athyglisverð erindi um guðfræði og nútímalegt samfélag.