
TJ Boisseau heldur fjórða fyrirlestur vormisseris í fyrirlestraröð RIKK og Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna. Fyrirlestur hennar nefnist „Að stíga fram … og taka afstöðu. Reynsla af femínískri forystu“.
TJ Boisseau er forstöðumaður og dósent í kvenna-, kynja- og kynfræði við Purdue-háskóla í Bandaríkjunum og Fulbright-kennari við Háskóla Íslands á vorönn 2017. Hún lauk doktorsprófi í sögu bandarískra kvenna frá Bingham-háskóla í New York árið 1996. Helstu rannsóknarefni hennar, bækur og greinar, m.a. bókin White Queen: May French-Sheldon and the Imperial Origins of American Feminist identity (2004), varða sögulega mótun amerísks femínisma sem hugmyndar og sjálfsmyndar í fjölþjóðlegu samhengi.
Á síðustu árum hefur mikið farið fyrir umræðu um að lausn á viðvarandi kynjamisrétti felist í því að konur „stígi fram“. TJ Boisseau gagnýnir þessa aðferð í fyrirlestri sínum og telur mikilvægara að litið sé til þess hvernig hið einstaklingsbundna er samofið sögulegum skilningi þegar möguleikar kvenna til forystu og feminískrar vitundarvakningar í nútíma samfélagi eru metnir.
Fyrirlesturinn, sem haldinn er á ensku, er öllum opinn.
Hádegisfyrirlestraröð RIKK og Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna á vormisseri 2017 er haldin í samvinnu við Þjóðminjasafn Íslands.
Fyrirlesturinn, sem haldinn er á ensku, er öllum opinn.
Finndu viðburðinn á Facebook!