Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Umritunarstjórnun á mismunandi fjölhæfniástandi í fósturþroska músa

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
16. mars 2017 - 12:20 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Keldur - bókasafn
Háskóli Íslands

Fyrirlesari: Erna Magnúsdóttir, dósent í lífeinda- og líffærafræði við Læknadeild HÍ.

Í fósturþroska er mjög nákvæm stjórn á frumusérhæfingu. Á undanförnum árum hefur komið í ljós að í fósturþroska músa er ákveðin framrás í eðli fjölhæfnisástands frá innri frumumassa kímblöðru fyrir hreiðrun til kímþekju eftir hreiðrun og svo við sérhæfingu frumkímfruma sem eru forverar kynfruma. Þessari framrás má líkja eftir í frumuræktarkerfum með stofnfrumum úr fósturvísum.

Í fyrirlestrinum mun Erna fjalla um nýtt verkefni í rannsóknarhóp hennar sem snýr að umritunarþáttum sem eru tjáðir í kímlínu músa og hvernig þeir taka þátt í sérhæfingu frumkímfruma og hafa áhrif á flæði fruma á milli mismunandi fjölhæfnisástanda.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012