Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Tvær tangóæfingar eftir Piazzolla á háskólatónleikum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
15. mars 2017 - 12:30 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðarsalur, annarri hæð
Guido Bäumer og Aladár Rácz
Á háskólatónleikum miðvikudaginn 15. mars nk. flytur DUO ULTIMA tónlist frá Norður- og Suður-Ameríku, verk eftir Robert Muczynski, Gunther Schuller og Astor Piazzolla. DUO ULTIMA skipa Guido Bäumer saxófónleikari og Aladár Rácz píanóleikari.
 
Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og þeir verða í Hátíðasalnum á annarri hæð aðalbyggingar Háskóla Íslands.
 
Enginn aðgangseyrir er að tónleikunum og allir eru velkomnir.
 
Tónleikanefnd Háskóla Íslands
 
 
Um Duo Ultima
 
Félagarnir í Duo Ultima hafa starfað saman í rúm 13 ár. Samstarfið hófst þegar Guido Bäumer æfði konsert til að leika með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og ók frá Dalvík til Húsavíkur á æfingarnar með Aladár Rácz. Upp úr því tók við tónleikahald með frönskum verkum (Debussy, Schmitt o.fl.) og síðan tók hver áskorun við af annarri. Þegar þeir báðir voru fluttir á höfuðborgar-svæðið tók samstarfið á sig nýja víddir.
 
Duo Ultima hefur tekið upp þrjá geisladiska í samvinnu við upptökufyrirtækið Fermötu og eru diskarnir komnir út á vegum alþjóðlega útgáfufyrirtækisins Odradek Records. Titill fyrsta disksins er Flashback, evrópsk tónlist fyrir saxófón og píanó. Annar diskurinn, French Connection, tvöfaldur diskur, er með verkum sem tengjast frönskum impressjónisma eða Frakklandi á einn eða annan hátt.
 
Duo Ultima fékk listamannalaun síðasta haust til tónleikahalds erlendis. Haldnir voru tónleikar í fimm löndum við góðar undirtektir.
 
Tónlistamennirnir Guido Bäumer og Aladár Rácz
Guido Bäumer er frá Norður-Þýskalandi. Hann hefur verið búsettur í Hafnarfirði í 10 ár. Hann nam tónlist í Bremen og lauk þar kennaraprófum á saxófón og þverflautu. Hann var í framhalds-námi við Tónlistarháskólann í Basel þar sem hann lauk einleikaraprófi með hæstu einkunn og við Bowling Green State University í Ohio.
 
Á Íslandi hefur Guido m.a. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands (einnig einleik í saxófónkonsert eftir J. Ibert) og haldið spunatónleika með tölvubreyttum hljóðum. Þá hefur Guido frumflutt verk eftir íslensk tónskáld. Hann er einnig félagi í Íslenska saxófónkvartettinum. Guido kennir við skóla-hljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu, við Tónlistarskólann í Kópavogi og er einnig stundakennari við Listaháskólann.
 
Aladár Rácz fæddist í Rúmeníu. Hann stundaði fyrst nám í píanóleik við Georges Enescu tónlistar-skólann í Búkarest en síðan framhaldsnám í Búkarest og Búdapest. Hann hefur leikið á tónleikum víða um heim, leikið inn á geisladiska og unnið til verðlauna fyrir leik sinn í alþjóða-keppnum. Á árunum 1999-2013 kenndi Aladár við Tónlistarskóla Húsavíkur og lék með ýmsum kórum og söngvurum norðan lands og austan. Hann var einnig um tíma meðleikari framhaldsnemenda við Tónlistarskólann á Akureyri.
 
Aladár hefur haldið nokkra einleikstónleika í Salnum í Kópavogi og hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í píanókonserti nr. 1 eftir Beethoven og í píanókonserti nr. 1 eftir Brahms. Aladár hefur verið búsettur hér syðra frá sumri 2013 og kennir við tónlistarskólann Do Re Mi, Söngskóla Sigurðar Demetz og er einnig meðleikari við Listaháskólann.
 
 
 
Þess má geta að á síðustu tónleikunum skólaársins, þann 29. mars nk. flytja Viktor Orri Árnason, fiðla, og Bjarni Frímann Bjarnason, píanó, tvær fiðlusónötur eftir Áskel Másson. Tónleikarnir verða í Hátíðasal.
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012