Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Við kynnum nýjan prófessor - Brynjólfur Á. Mogensen

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
30. mars 2017 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 343
Háskóli Íslands
Þann 30. mars nk. flytur Brynjólfur Árni Mogensen, prófessor við Læknadeild, erindi í tilefni að framgangi sínum.
 
Á Heilbrigðisvísindasviði er haldið upp á framgang eða ráðningu nýrra prófessora með sérstökum kynningarfyrirlestri. Athafnirnar hefjast með stuttu yfirliti yfir helstu störf viðkomandi prófessors, en svo tekur hann sjálfur við og flytur erindi um störf sín og framtíðarsýn í kennslu og rannsóknum. Í lok athafnarinnar gefst svo tækifæri til þess að spjalla og gleðjast með hinum nýja prófessor.
 
Tilgangur kynningarfyrirlestranna er að vekja athygli á hinum nýja prófessor, störfum hans og áherslum, ekki síst til þess að auka tengsl og samstarf innan skólans, en einnig til þess að hefja prófessorsstarfið til vegsemdar. 
 
Allir velkomnir!

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012