
Dr. Tom Arthurs er enskur trompetleikari og virtur alþjóðlega sem slíkur, einkum í djass- og spunageiranum þar sem hann hefur t.a.m. gefið út á hinu virta merki ECM, skrifað verk fyrir BBC og starfað með fólki eins og Fred Frith, Juliu Hülsmann og Jack DeJohnette; tilraunatónlistarfólki sem og kanónum.
Arthurs hefur og sinnt akademískum, félagsfræðilegum rannsóknum og er hann með doktorsgráðu í þeim fræðum frá háskólanum í Edinborg.
Lýsing á erindi:
Fyrirlesturinn byggir á doktorsritgerð hans. Hún fjallar um samfélag spunatónlistarfólks í Berlín, þar sem Arthurs sjálfur býr, og fól hún í sér eigindlega viðtalsvinnu auk etnógrafískrar viðveru á helstu spunatónlistarklúbbum borgarinnar.
Samskiptanet tónlistarfólksins, auk sjálfsmyndar þeirra og hvernig það ber sig að við líf og störf var m.a. undir í rannsókn Arthurs.
Fyrirlesturinn er sérstaklega fróðlegur fyrir áhugafólk um félagsfræðileg hugtök eins og hópsamskipti, tengsl og félagsnet en auk þess tónlist og eigindlegar rannsóknarnálganir.
Allir velkomnir.