Hvenær hefst þessi viðburður:
25. janúar 2017 - 12:20 til 13:20
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 101

Nýsköpunarsjóður námsmanna - Sumarvinna við sjálfstæðar rannsóknir
Starfsmaður frá Nýsköpunarsjóði námsmanna kynnir sjóðinn fyrir nemendum.
Að því loknu geta áhugasamir spurt spurninga.
Markmið sjóðsins er að gefa háskólum, rannsóknarstofnunum og fyrirtækjum tækifæri til að ráða háskólanema í grunn- og meistaranámi í sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarverkefni.
- Styrkir verða veittir til rannsóknar- og þróunarverkefna sem líkleg þykja til að stuðla að nýsköpun og auknum tengslum háskóla, stofnana og fyrirtækja
- Umsóknir um styrki eru metnar með hliðsjón af möguleikum til hagnýtingar í atvinnulífi og nýnæmi fyrir þekkingu í viðkomandi fræðigrein
- Verkefnin skulu leyst af hendi með sjálfstæðri og faglegri vinnu námsmanns undir leiðsögn ábyrgðarmanna
- Styrkir eru ekki veittir til lokaverkefna námsmanna
- Úthlutun mun liggja fyrir í mars/apríl 2017
Hverjir geta sótt um?
- Háskólanemar í grunn- og meistaranámi
- Sérfræðingar innan fyrirtækja, stofnana og háskóla sem óska eftir að ráða háskólanema í sumarvinnu við rannsóknir
Kynningin er opin öllum.