Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Með fróðleik í fararnesti - Eldfjalla- og gjótukönnun í Búrfellsgjá

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
2. maí 2017 - 17:00
Háskóli Íslands
Háskóli Íslands og Ferðafélag barnanna standa fyrir eldfjalla- og gjótukönnunarferð fyrir alla fjölskylduna í Búrfellsgjá þriðjudaginn 2. maí kl. 17. Hist verður á einkabílum frá bílastæðinu við Vífilsstaði í Garðabæ og ekið í halarófu inn í Heiðmörk og gengið eftir Búrfellsgjá að gígnum Búrfelli.
 
Snæbjörn Guðmundsson, jarðfræðingur frá Háskóla Íslands, útskýrir þau náttúrufyrirbrigði sem fyrir augu ber en þetta svæði er stórkostlegur ævintýraheimur og sýnir vel tilurð Íslands. Á leiðinni eru ýmsir hellar, sprungur og gjótur kannaðar.
 
Gangan er hluti af verkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags Íslands, Með fróðleik í fararnesti, sem hófst á aldarafmæli skólans árið 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í þessum áhugaverðu gönguferðum. Markmiðið með þeim er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi Háskóla Íslands og Ferðafélagsins.
 
Þátttaka ókeypis og allir velkomnir.
 
Næstu ferðir:
Þriðjudaginn 13. júní kl. 17 - Pöddulíf í Elliðaárdal
Þriðjudaginn 21. júní kl. 16 - Álfaganga um Jónsmessu
Laugardaginn 26. ágúst kl. 11 - Sveppasöfnun í Heiðmörk
Laugardadinn 9. september kl. 11 - Holdsveiki og Hallgerður langbrók
Laugardaginn 23. september kl. 11 - Margt býr í Öskjuhlíðinni
Laugardaginn 7. október kl. 13.30 - Fjöruferð í Gróttu

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012