Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Doktorsvörn í landfræði - Sigrún Dögg Eddudóttir

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
21. desember 2016 - 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 132
Sigrún Dögg Eddudóttir

Miðvikudaginn 21. desember ver Sigrún Dögg Eddudóttir doktorsritgerð sína í landfræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Heiti verkefnisins er:  Eðli og ástæður umhverfisbreytinga á Norðurlandi vestra á nútíma (Holocene environmental change in Northwest Iceland).

Andmælendur eru dr. Ólafur Ingólfsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, og dr. Ian T. Lawson, lektor við Háskólann í St. Andrews, Skotlandi.

Leiðbeinandi var dr. Egill Erlendsson, dósent við  Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands. Einnig sátu í doktorsnefnd dr. Guðrún Gísladóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands og dr. Ólafur Eggertsson, sérfræðingur hjá Skógræktinni.

Dr. Anna Dóra Sæþórsdóttir, prófessor og deildarforseti Líf- og umhverfisvísindadeildar, stjórnar athöfninni.

Ágrip af rannsókn
Umhverfi Íslands hefur tekið miklum breytingum frá landnámi. Fyrir landnám var loftslag helsti áhrifaþáttur gróður- og umhverfisbreytinga en einnig höfðu eldgos skammvinn áhrif. Þessi rannsókn fjallar um gróður- og umhverfisbreytingar í Austur-Húnavatnssýslu á nútíma, bæði í tíma og rúmi. Saga gróðurfarsbreytinga er byggð á greiningum frjókorna og plöntuleifa úr þremur stöðuvötnum og einum mýrarkjarna. Rannsóknastaðirnir mynda langsnið frá strandsvæði á Skaga upp að hálendisbrún.

Umhverfisaðstæður á hverjum stað höfðu mikil áhrif á gróðurframvindu og var töluverður munur á gróðurframvindu milli svæða. Gróðurfar á láglendi stjórnaðist að mestu af loftslagi. Hlýjustu skeið nútíma voru fyrir um 10.100-8700 og 8000-6000 árum. Birkiskógar náðu hámarksútbreiðslu fyrir um 8000-6000 árum en þeim tók að hnigna vegna kólnandi loftslags fyrir um 6000 árum.

Gróðurframvinda var hægari við hálendisbrún þar sem kjarr eða skógur myndaðist fyrir um 7800 árum en birki var þar nálægt vistfræðilegum mörkum tegundarinnar. Birki hélt velli þar til fyrir um 4200 árum. Áhrif mannvistar verða greinileg fyrir um 1000 árum en þau koma fram í breytingum á gróðri og auknum óstöðugleika í umhverfinu. Engin ummerki eru um birkikjarr eða skóga nyrst á Skaga. Gróðurfar þar hefur líklega einkennst af lyngmóa allan nútíma.

Áhrif gjóskulagsins Heklu 4 sem féll fyrir um 4200 árum á gróður voru skoðuð sérstaklega. Gjóskufallið hafði áhrif bæði í stöðugu skóglendi á láglendi og opnu skóglendi/kjarri við hálendisbrún. Gjóskufallið ásamt kólnandi loftslagi gerði það að verkum að gróður við hálendisbrún breyttist úr kjarri/skóglendi í fjalldrapamóa eftir gosið.

Um doktorsefnið

Sigrún Dögg lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Egilsstöðum árið 2001, BS-gráðu í landfræði frá Háskóla Íslands árið 2007 og MS-gráðu í náttúrulandfræði og kvarterjarðfræði frá Háskólanum í Stokkhólmi árið 2011.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012