Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Málstofa meistaranema á Menntavísindasviði

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. desember 2016 - 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
K-204
Háskóli Íslands
Föstudaginn 9. desember kynna fimm MA-nemar lokaverkefni til meistaraprófs (rannsóknaráætlun eða niðurstöður).
 
MA-málstofur eru opnar öllum nemendum og starfsfólki Menntavísindasviðs en meistaranemar og kennarar sem leiðbeina meistaranemum eru sérstaklega hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum um verkefnin.
 
Kynningarnar eru þáttur í vinnu nemenda við rannsóknarverkefni til MA-prófs en MA-nemum er skylt að kynna eigið efni í að minnsta kosti tveimur málstofum á námstímanum, þ.e. rannsóknaráætlun í fyrra skiptið og niðurstöður rannsóknar í síðara skiptið. Málstofurnar eru vettvangur nemenda til kynna verkefni sín, kynnast verkum annarra og skiptast á skoðunum um verkefnin. 
 
Fundarstjóri: Anna Kristín Sigurðardóttir, dósent við Menntavísindasvið 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012