Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Samleit efnahvötun á flutningi brennisteins og efnasmíðar ósamhverfra mólybdenum brennisteins komplexa

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. desember 2016 - 12:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 261
Benedikt Orri Birgisson

Benedikt Orri Birgisson flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í efnafræði. Heiti verkefnisins er Samleit efnahvötun á flutningi brennisteins og efnasmíðar ósamhverfra mólybdenum brennisteins komplexa.

Ágrip

Til að sporna við loftslagsbreytingum ýttu Sameinuðu Þjóðirnar af stað átaki til að minnka magn brennisteins í eldsneyti umfram núverandi mörk. Við framleiðslu á eldsneyti er brennisteinn fjarlægður úr hráolíu með samleitri efnahvötun. Vegna þess hve mikilvæg fjarlæging brennisteins er við hreinsun á hráolíu og stærðar umfangs framleiðslunnar hefur HDS hvötun verið mikið rannsökuð. Þrátt fyrir það hefur ekki enn tekist að umbylta ferlinu og er enn verið að nota hvatakerfi sem svipar mjög til þess sem var notað fyrir fimmtíu árum. Núverandi kerfi samanstendur af mólybdenum dísúlfíði og Ni eða Co fest á málmoxíð burðarefni í misleitt hvötuðu hvarfi við háan hita og vetnisþrýsting. Hvarfið gengur í gegnum málmhvatað brennisteins frásog og vetnun. Í þessu verkefni voru þrír tvíkjarna mólybdenum brennisteins komplexar smíðaðir og hvatavirkni þeirra gagnvart thiophene og propylene súlfiði kannaðir. Niðurstöður mælinga sýna fram á að efnin sem voru smíðuð eru fær um að fjarlægja brennistein og opna þar með möguleikann til frekari rannsókna á efnasmíðum hvata færum um HDS hvötun.

Leiðbeinendur: Sigríður G. Suman, dósent við Raunvísindadeild Háskóla Íslands og Sigurjón N. Ólafsson, dósent emeritus.
Prófdómari: Dr. Gissur Örlygsson.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012