
Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd og Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands standa að málstofuröð haustið 2016
sem ber heitið Flóttabörn og félagsráðgjöf - ábyrgð samfélags
Að vera flóttabarn - nýjar áskoranir og verkefni félagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg
Edda Ólafsdóttir, félagsráðgjafi hjá mannréttindaskrifstofu velferðarsviðs Reykjavíkurborgar flytur fyrirlestur í fyrirlestraröðinni Flóttabörn og félagsráðgjöf – ábyrgð samfélags.
Edda mun fjalla um vinnu Reykjavíkurborgar með flóttabörnum, þær áskoranir og nýju verkefni sem þeim fylgja. Hún fjallar einnig um viðkvæma stöðu flóttabarna og almenna stöðu, samvinnu við háskólasamfélagið og framtíðarsýn.
Jóhanna Erla Guðjónsdóttir og Helena N. Wolimbwa, félagsráðgjafar og sérfræðingar í vinnu með flóttafólki, taka þátt í umræðum og lýsa sínu starfi með flóttabörnum, foreldrum þeirra og fylgdarlausum flóttabörnum.
Allir velkomnir