Hvenær hefst þessi viðburður:
25. nóvember 2016 - 13:00 til 16:30
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
N-132

Ráðstefna um: Mönnun og gæði í öldrunarþjónustu, Ráðstefna fyrir stjórnendum og starfsfólki í öldrunarþjónustu.
Á ráðstefnunni flytur dr. Christine Mueller, prófessor við háskólann í Minnesota tvö erindi, en hún hefur rannsakað og skrifað um áhrif mönnunar og hlutfalls fagfólks sem starfar í öldrunarþjónustu á gæði þjónustunnar og líðan íbúanna. Hún kynnir hvað rannsóknir hafa sýnt að er mikilvægt í þessum málum. Auk þess eru þrjú erindi á íslensku sem flutt eru af: Helgu Garðarsdóttur, deildarstjóra greiningardeildar hjá Sjúkratryggingum Íslands, Laura Scheving Thorsteinsson, Staðgengill sviðsstjóra sviðs eftirlits og gæða hjá Embætti landlæknis og Ingibjörg Hjaltadóttir, sérfræðingur í öldrunarhjúkrun á Flæðissviði Landspítala og dósent við Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. Sjá nánar í meðfylgjandi dagsskrá.
Þátttökugjald er 1500 kr og skráning er á hjukrun.is. Til að tryggja sér sæti á ráðstefnunni þarf að greiða ráðstefnugjald við skráningu.