
Fimmtudaginn 24. nóvember opnar í Þjóðminjasafni Íslands sýninginÍsland í heiminum, heimurinn í Íslandi. Sýningin er unnin í samstarfi við Háskóla Íslands.
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson opnar sýninguna í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands, 2.h. kl. 15.
Saga og samtími Íslands hefur einkennst af þverþjóðlegum tengslum rétt eins og annarra landa í heiminum. Ísland hefur þannig verið vettvangur hreyfanleika fólks og hugmynda í gegnum aldir. Þetta er mikilvægt að undirstrika á tímum þegar dagleg umræða byggir oft á þeirri hugmynd að fyrr á öldum hafi ólíkir hlutar heimsins verið einangraðir hverjir frá öðrum. Fordómar í íslensku samfélagi eru ekki heldur nýir því að Íslendingar hafa um aldir verið mótaðir af hnattrænum hugmyndum um kynþáttafordóma.
Sýningarhöfundar eru þær Unnur Dís Skaptadóttir, prófessor í mannfræði og Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði.