Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Kynning á skiptinámi og starfsnámi fyrir nemendur Stjórnmálafræðideildar og Félagsráðgjafardeildar

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
17. nóvember 2016 - 12:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
H-5
Kynning á skiptinámi

Á kynningunni verður farið yfir þá spennandi möguleika á skiptinámi og starfsnámi sem standa nemendum til boða.

Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla víða um heim og árlega nýta sér fjölmargir að taka hluta af náminu erlendis og sækja sér þannig sérhæfingu í námi og dýrmæta reynslu.

Dagskrá:
- Kynning frá Skrifstofu alþjóðasamskipta (Harpa Sif Arnarsdóttir)
- Kennari ræðir kosti skiptináms (Stefanía Óskarsdóttir, dósent í stjórnmálafræði)
- Nemandi segir frá reynslu sinni af því að fara í skiptinám (Oddur Ævar Gunnarsson)
- Starfsmaður úr stjórnsýslu fer yfir praktísk mál (Sigrún Dögg Kvaran og Tryggvi Áki Pétursson)
- Umræður og spurningar 

Fundarstjóri er Tryggvi Áki Pétursson 


Kostir þess að fara í skiptinám:

» fjölbreyttara námsframboð
» skiptinámið er metið inn í námsferil við Háskóla Íslands
» tækifæri til að kynnast menningu annarra landa
» einfaldara og ódýrara en að fara í nám á eigin vegum
» skólagjöld eru felld niður, m.a. við háskóla í Bandaríkjunum og Kanada 
» aukin tungumálakunnátta
» dýrmæt reynsla sem nýtist í frekara námi eða á vinnumarkaði 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012