Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Skiptinám og starfsnám fyrir nemendur Félags- og mannvísindadeildar

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
11. nóvember 2016 - 13:20
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
102
Háskóli Íslands

Á kynningunni verður farið yfir þá spennandi möguleika á skiptinámi og starfsnámi sem standa nemendum Félags- og mannvísindadeildar til boða.

Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla víða um heim og árlega nýta sér fjölmargir að taka hluta af náminu erlendis og sækja sér þannig sérhæfingu í námi og dýrmæta reynslu.

Kynningin er haldin í tengslum við Alþjóðaviku HÍ sem fram fer dagana 7.-11. nóvember.

 

Dagskrá: 

1. Kynning frá Skrifstofu alþjóðasamskipta 
2. Kennari ræðir kosti skiptináms 
3. Nemandi segir frá reynslu sinni af því að fara í skiptinám 
4. Starfsmenn úr stjórnsýslu fara yfir praktísk mál
5. Umræður og spurningar 
 

Fundarstjóri er: Erna Rut Steinsson 


Kostir þess að fara í skiptinám:

» fjölbreyttara námsframboð
» skiptinámið er metið inn í námsferil við Háskóla Íslands
» tækifæri til að kynnast menningu annarra landa
» einfaldara og ódýrara en að fara í nám á eigin vegum
» skólagjöld eru felld niður, m.a. við háskóla í Bandaríkjunum og Kanada 
» aukin tungumálakunnátta
» dýrmæt reynsla sem nýtist í frekara námi eða á vinnumarkaði 
 

Alþjóðadagur Háskóla Íslands verður haldinn fimmtudaginn 10. nóvember frá kl. 12 til 14 á Háskólatorgi. Öll velkomin.

 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012