Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Erasmus+ ferðastyrkir til starfsmanna HÍ

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. nóvember 2016 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
101
Háskóli Íslands

Fulltrúi frá Skrifstofu alþjóðasamskipta kynnir möguleika á Erasmus+ styrkjum til kennaraskipta og starfsþjálfunar, fer yfir umsóknarferlið og svarar spurningum.  

Frestur til þess að sækja um fyrir skólaárið 2017–18 er til 15. maí. Opnað verður fyrir þær umsóknir í mars 2017. Ennþá er hægt að sækja um einhverja styrki fyrir yfirstandandi skólaár.

Kennarar geta sótt um styrki til að sinna gestakennslu við evrópska samstarfsskóla. Þá stendur þeim einnig til boða að fara í starfsþjálfun, sem getur nýst þeim í kennslu og/eða rannsóknum. Ferðir á ráðstefnur eru ekki styrktar.

Starfsfólki í stjórnsýslu gefst kostur á að heimsækja háskóla eða aðrar stofnanir í Evrópu og kynna sér starfshætti og nýjungar í sambærilegum störfum. Starfsmenn geta farið í starfsþjálfun s.s. fylgiþjálfun (job shadowing), á vinnustofur, námskeið, alþjóðavikur eða aðrar skipulegar heimsóknir. Tungumálanámskeið og ferðir á ráðstefnur eru ekki styrktar.

Fjölmargir starfsmenn Háskólans hafa á undanförnum árum nýtt sér tækifæri til að heimsækja evrópska háskóla.

Nánari upplýsingar

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012