Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

MS fyrirlestur í matvælafræði; Anna Birna Björnsdóttir

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
24. október 2016 - 15:00
Nánari staðsetning: 
Matís ohf. stofa 312. Vínlandsleið 12 Reykjavík
Háskóli Íslands

Meistaraprófs fyrirlestur Önnu Birnu Björnsdóttur fjallar um:

Breytileika þorsk- og ufsalifrar eftir árstíma, efna- og eðliseiginleika.“Annually variation in lipid composition and vitamin content in the liver of cod and saith. “
 
Markmið verkefnisins var að kanna hvort stærð fisks hafi áhrif á hvaða lýsi komi úr lifrinni (þyngdarsýni) og eins árstíðabundnar breytingar á lýsinu eftir því á hvaða árstíma fiskurinn er veiddur (staðalsýni). 
Í bæði staðalsýnum og þyngdarsýnum voru gerðar A, D og E vítamín mælingar ásamt EPA og DHA fitusýrumælingum. Einnig voru gerðar mælingar á ósápanlegu efni, joðtölu, brotstuðli, vatni, próteini og fitu. Þá var holdastuðull, lifrarstuðull og hlutfallsleg fita í lifur rannsökuð. 
Af staðalsýnunum sem tekin voru í hverjum mánuði var klárlega hægt að sjá að það skipti máli á hvaða tímabili ársins fiskurinn var veiddur og á hvaða fæðu hann nærðist. Á þyngdarsýnum var marktækur munur á milli stærð af fiskum í nokkrum mælingum. Þetta átti bæði við um þorskinn og ufsann. 
Verkefni til meistaragráðu í matvælafræði unnið í samvinnu við Lýsi og Matís og lifrar sýnin komu frá HBGranda.
Af staðalsýnunum sem tekin voru í hverjum mánuði var klárlega hægt að sjá að það skipti máli á hvaða tímabili ársins fiskurinn var veiddur og á hvaða fæðu hann nærðist. Á þyngdarsýnum var marktækur munur á milli stærð af fiskum í nokkrum mælingum. Þetta átti bæði við um þorskinn og ufsann.
 
Verkefnið er til meistaragráðu í matvælafræði og unnið á Matís.
 
Leiðbeinendur: Sigurjón Arason, Þórhallur Ingi Halldórsson, Ásbjörn Jónsson og Rakel Sæmundsdóttir.
Prófdómari: Björn Viðar Aðalbjörnsson.
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012