Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Hugmyndaheimur Páls Briems. Málþing í Þjóðminjasafni 19. október

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
19. október 2016 - 13:00 til 17:00
Staðsetning viðburðar: 
Háskóli Íslands

Námsbraut í sagnfræði, Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands og afkomendur Páls Briems amtmanns (1856-1904) gangast fyrir málþingi þar sem verk Páls verða rædd út frá ýmsum hliðum, m.a. stjórnmálasögu landshöfðingjatímans, þróun frjálslyndra hugmynda á Íslandi og sögu jafnréttisbaráttunnar. Megináherslan verður á hugmyndasögu og andlegar hræringar á Íslandi og í Evrópu á dögum Páls. Málþingið er opið og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

 

 

Hugmyndaheimur Páls Briems

Málþing í Þjóðminjasafni 19. október

Dagskrá:

  • 13.00 Setning. Eggert Ásgeirsson flytur ávarp fyrir hönd afkomenda Páls Briems.
  • 13.10 Gunnar Karlsson: Meðal frumkvöðla frjálslyndra vinstrimanna á Íslandi
  • 13.40 Sverrir Jakobsson: Páll Briem sem miðaldafræðingur
  • 14.10 Vilhelm Vilhelmsson: Siðspillandi lögbrot. Páll Briem og leysing vistarbands
  • 14.40 Ragnheiður Kristjánsdóttir: Páll Briem og reglur um kosningarétt og kosningar
  • 15.10 Kaffihlé
  • 15.30 Guðmundur Jónsson: Undir merkjum félagslegrar frjálshyggju? Samanburður á félagslegum viðhorfum Hannesar Hafstein, Páls Briem og Skúla Thoroddsen.
  • 16.00 Erla Hulda Halldórsdóttir: Kvenfrelsismálið og lífstykkin. Tvíburasystkinin Elín og Páll
  • 16.30 Helgi Skúli Kjartansson: Endurkoman. Páll Briem og pólitík aldamótatímans

Fundarstjóri: Anna Agnarsdóttir

Hér má nálgast útdrætti erinda sem flutt verða á málþinginu (pdf).


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012