Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Að styrkja og stuða í 20 ár: Afmælisveisla kynjafræðináms í Háskóla Íslands

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
20. október 2016 - 20:00 til 22:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
HT-101
Háskóli Íslands

Á þessu hausti fagnar kynjafræðinám í Háskóla Íslands 20 ára afmæli. Af því tilefni verður afmælisveisla fimmtudagskvöldið 20. október.

Karen Ásta Kristjánsdóttir, MA í kynjafræði, mun flytja erindi úr MA-ritgerð sinni sem ber yfirskriftina „Ástríða og akademía: Kynjafræðileg þekking, miðlun og framkvæmd“ þar sem hún fjallar um reynslu nokkurra nemenda af náminu (http://skemman.is/item/view/1946/21035).

Þá verða 5 mín. örerindi þar sem fyrrverandi nemendur, þau Andrea Róberts, Anna Bentína Hermansen, Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir og Þorvaldur Kristinsson fjalla um hvað tók við eftir námið, veganestið, minnisstæð atvik eða upplifanir úr náminu.

Loks verður skrafað og skeggrætt og boðið upp á afmælistertu. Lára Rúnars flytur nokkur lög og Steinunn Rögnvaldsdóttir sér um veislustjórn.

Viðburðurinn er haldinn á vegum kynjafræðináms í HÍ og hluti af Jafnréttisdögum 2016.

Viðburðurinn er á íslensku og aðgengi er gott.
Öll velkomin.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012