
Sveppir eru sérstæðar lífverur og því settir í sitt eigið ríki, svepparíkið. Sveppir eru margir afar bragðgóðir en aðrir varasamir. Í gönguferðinni í Heiðmörk verður sveppum safnað saman og fræðst um þá, verkun þeirra og matreiðslu. Jafnframt verður farið yfir hvaða sveppi má borða og hverjir eru eitraðir. Sveppir þrífast alla jafna nálægt trjágróðri og því geta göngumenn átt von á að finna fjölmargar tegundir ætra sveppa í Heiðmörk. Silke Werth, nýdoktor við Líf- og umhverfisvísindastofnun og Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, leiða gönguna. Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, kl. 11. Hægt verður að sameinast þar í bíla. Gert er ráð fyrir að ferðin taki um það bil þrjár klukkustundir að akstrinum í Heiðmörk meðtöldum. Ferðin er farin í samvinnu við Ferðafélag barnanna.
Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands halda áfram samstarfi sínu um gönguferðir sem efnt var til í tilefni aldarafmælis skólans 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskólans blandast saman í áhugaverðum gönguferðum og nú hjólaferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess. Ferðirnar verða sex talsins og tekur hver um tvær klukkustundir. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.
Markmiðið með samstarfinu er að vekja áhuga almennings á fræðslu og hollri útivist og fjölga valkostum í þeim efnum. Um leið er vakin athygli og vonandi áhugi á fjölbreyttri starfsemi háskólans og Ferðafélagsins.
------------------------------------------
Næstu ferðir:
13. september kl. 11 - Karl Benediktsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, leiðir hjólaferð um hjólastíga borgarinnar. Staldrað verður við á nokkrum stöðum og fjallað um breytta borgarmynd. Þátttakendur mæti á reiðhjóli. Lagt verður af stað frá Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, kl. 11.
11. október kl. 11 - Steinunn J. Kristjánsdóttir og Orri Vésteinsson, prófessorar við Sagnfræði- og heimspekideild, leiða göngu um miðborgina þar sem skyggnst verður inn í upphaf landnáms og horft yfir sundið til Viðeyjar. Lagt verður af stað frá Aðalstræti 16 kl. 11.