
Ásgeir Jónsson mun halda MS fyrirlestur sem fjallar um: Bestun sjóflutninga á ferskum fiskflökum og -bitum.Gæði og kostnaður. “Optimized Sea Transport of Fresh Fillets and Loins. Quality and Cost”.
Markmið þessa verkefnis er að greina þróun flutninga á ferskum flökum og bitum frá Íslandi undanfarin ár. Einnig að meta áhrif þess á gæði og geymsluþol þegar ferskri afurð er pakkað á hefðbundinn hátt í frauðkassa samanborið við að pakka henni í ískrapa í ker. Í síðasta lagi að bera saman umbúða- og flutningskostnað þessara tveggja pökkunaraðferða.
Niðurstöðurnar sýna að magn ferskra flaka og bita sem flutt er með skipum frá Íslandi tæplega sexfaldaðist frá 2004 til 2014. Árin 2013 og 2014 fór um 90% af þeim fersku flökum og bitum sem fluttir voru með skipum á tvo markaði; Bretland og Frakkland. Niðurstöður rannsókna sýna að sterk jákvæð tengsl eru milli lengra geymsluþols og þess að pakka afurð í ískrapa í ker samanborið við frauðkassa. Ískrapinn bætti einnig upp fyrir skort á forkælingu fyrir pökkun. Niðurstöður kostnaðargreiningar sýna að umtalsvert ódýrara er að pakka vöru í ker en frauðkassa. Þá er flutningskostnaðar einnig lægri í flestum tilvikum þegar ker eru borin saman við frauðkassa. Meira en helmingi lægri ef borinn er saman kostnaður við að flytja fullan gám af kerum annars vegar og 3 kg frauðkössum hins vegar. Sveigjanleikinn við notkun kera er þó mun minni og dregur það úr notkunarmöguleikum
Leiðbeinendur: Dr. Björn Margeirsson ráðgjafi hjá Matís, Sigurjón Arason prófessor við matvæla- og næringarfræðideild og yfirverkfræðingur við Matís og Ögmundur Knútsson forseti viðskipta- og raunvísindasviðs Háskólans á Akureyri.
Prófdómari: Daði Már Kristófersson prófessor og forseti Félagsvísindasviðs HÍ.