Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Grúpuverkanir á óendanleg stefnd net og undirbrauta fallið

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
6. október 2016 - 16:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Naustið
Háskóli Íslands

Arnbjörg Soffía Árnadóttir flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í stærðfræði. Heiti verkefnisins er Grúpuverkanir á óendanleg stefnd net og undirbrauta fallið.

Ágrip

Við notum grúpuverkanir til þess að skoða óendanleg stefnd net. Við byrjum á því að skilgreina grúpumótun sem við köllum hlutbrautafallið. Við notum svo þessa mótun til þess að skoða ýmsa eiginleika óendanlegra stefndra neta, þ.á.m. myndir netamótana, háörvavegagegnvirkni, Cayley-Abels net og vöxt neta.

Leiðbeinendur: Rögnvaldur G. Möller og Jón Ingólfur Magnússon, báðir prófessorar við Raunvísindadeild Háskóla Íslands.
Prófdómari: Peter M. Neumann, emerítus við The Queen's College, Oxford University.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012