
Rafn Viðar Þorsteinsson flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í iðnaðarverkfræði. Heiti verkefnisins er Kvik kerfisfræðileg nálgun á þjóðhagfræði.
Ágrip
Flókin fjármála- og efnahagskerfi nútímans kalla á hagnýta aðferðfræði til þess að skilja hegðun þeirra. Til þess að geta stjórnað slíkum kerfum þarf fyrst að skilja orsakir og viðbragðslykkjur sem að baki þeim eru. Áskorunin liggur í því að ná hlutlausri og heildrænni nálgun á kerfið. Til að ná því fram þarf aðferðafræði sem getur fengið sérfræðinga frá ólíkum fræðisviðum og með ólíkan bakgrunn til að vinna saman að lausn. Því var aðferðafræðin Group System Analysis þróuð. GSA aðferðfræðinni var svo beitt bæði á verðbólgu og á húsnæðis- og leigumarkaðinn. Ferlið innihélt vinnustofur, þar sem íslenskir sérfræðingar tóku þátt. Kenning á áhrifavöldum verðbólgu og að orsakasamhengi húsnæðis og leigumarkaðarins voru settar fram og frumsannreynt. Næstu skref eru að þróa tölulegt líkan byggt á orsakasamhenginu og sannreyna það út frá sögulegum gögnum.
Leiðbeinendur: Harald U. Sverdrup, prófessor við Iðnaðarverkfræði, vélaverkfræði og tölvunarfræðideild Háskóla Íslands og Hilmar Bragi Janusson, forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands.
Prófdómari: Helgi Þór Ingason, prófessor við Háskólann í Reykjavík.