
Hádegisfundur um líftölfræði og krabbameinsrannsóknir á vegum Faralds- og líftölfræðifélagsins og Miðstöðvar í lýðheilsuvísindum
Fyrirlesarar: Mark Clements tölfræðingur (http://ki.se/en/people/marcle) og Þorgerður Pálsdóttir doktorsnemi, við Medicinsk epidemiologi och biostatistik (MEB) innan Karolínsku stofnunarinnar í Svíþjóð.
Dagskrá:
Mark Clements – Generalized Survival Models
Þorgerður Pálsdóttir – Áhættuspá (risk prediction) fyrir blöðruhálskirtilskrabbamein til að bæta PSA prófun: hefur lengd tímabilsins milli PSA prófa áhrif á stigun krabbameins? Prediction of Prostate Cancer Risk to Improve Prostate Specific Antigen (PSA) Testing: Does testing frequency influence the outcomes of Prostate Cancer?
Erindin verða flutt á ensku.
Allir velkomnir.