
Opinn fundur Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands.
Framsögumenn:
Róbert R. Spanó, dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og
Oddný Mjöll Arnardóttir, prófessor við Lagadeild HÍ
Í erindi sínu mun Róbert varpa ljósi á þróun nálægðarreglunnar (e. the principle of subsidiarity) í nýlegri dómaframkvæmd MDE og ólíkar birtingarmyndir reglunnar út frá sjónarhóli starfandi dómara við dómstóllinn. Spurt verður hvort það viðhorf sé á undanhaldi að MDE skuli vera í framvarðarhlutverki við vernd mannréttinda og því sé nú frekar lögð á það áhersla að dómstólnum beri að þróa dómaframkvæmd sína í ríkari mæli í þá átt að virkja frumábyrgð aðildarríkjanna við að tryggja mannréttindi.
Oddný mun greina frá rannsóknum sínum á kenningunni um svigrúm til mats, en áhersla verður lögð á að skýra tvær megin birtingarmyndir hennar og hvernig nýleg dómaframkvæmd birtir nokkuð breytta sýn dómstólsins á hlutverk sitt, sjá nánar á: http://journals.cambridge.org/action/displayAbstract?fromPage=online&aid... og http://papers.ssrn.com/sol3/papers.cfm?abstract_id=2709669
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.