Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Opinn fundur um sóknarfæri í list- og verkgreinum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
23. ágúst 2016 - 13:00 til 14:30
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
H-201
Háskóli Íslands

Opinn fundur um sóknarfæri í list- og verkgreinum við Menntavísindasvið verður haldinn í stofu H-201 þriðjudaginn 23. ágúst kl. 13:00-14:30 í Stakkahlíð.

Á fundi stjórnar Menntavísindasviðs þann 6. janúar 2016 var samþykkt að skipa starfshóp til að endurskoða og setja fram tillögur um sóknarfæri í list- og verkgreinum á sviðinu. Tillögur hópsins eru ráðgefandi.

Í starfshópnum sátu:

  • Andri Rafn Ottesen, nemandi í Kennaradeild

  • Ásdís Hrefna Haraldsdóttir, kennslustjóri Menntavísindasviðs, ritari hópsins

  • Jakob Frímann Þorsteinsson, formaður námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði

  • Svanborg Rannveig Jónsdóttir, dósent í listum og skapandi starfi á Menntavísindasviði

  • Árný Elíasdóttir, hjá Attentus, mannauði og ráðgjöf leiddi vinnuna

Starfshópurinn skilaði skýrslu um störf sín í júní síðastliðnum. Skýrslan er aðgengileg hér og er starfsfólk sviðsins hvatt til að kynna sér skýrsluna fyrir fundinn.

Á fundinum verður skýrslan og aðgerðaáætlun kynnt.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Trending Articles