Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Meistarafyrirlestur: Gæðakröfur á söluaðila upplýsingatæknikerfa til eftirlits með ástandi lyfja og fersks fisks í geymslu og í flutningum

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
13. desember 2013 - 15:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 157
Háskóli Íslands

Gunnar Harðarson flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í iðnaðarverkfræði. Verkefnið ber heitð Gæðakröfur á söluaðila upplýsingatæknikerfa til eftirlits með ástandi lyfja og fersks fisks í geymslu og í flutningum.

Yfirvöld hafa á undanförnum árum sett strangari kröfur um framleiðslu og flutninga á viðkvæmum vörum svo sem lyfjum og matvælum. Er það gert til að tryggja betur öryggi neytenda. Einn þáttur í því að uppfylla þessar kröfur er að fylgjast með ástandi vörunnar í framleiðslu, flutningum og geymslu sem og að geta rakið feril vörunnar frá framleiðendum til neytenda. Markmið verkefnisins er að kanna hvaða staðlar það eru sem nauðsynlegt er að innleiða og hvaða kröfur er nauðsynlegt fyrir fyrirtæki á þessu sviði þurfa að uppfylla. Í verkefninu eru viðkomandi þarfir og staðlar greindar með rýni í fræðigreinar, staðla og opinber gögn á Íslandi, í Evrópu og Bandaríkjunum, auk þess að framkvæma könnun og viðtöl við aðila í lyfjageiranum og þeirra sem meðhöndla og flytja ferskan fisk hérlendis.

Leiðbeinendur: Gunnar Stefánsson, prófessor og Erlingur Brynúlfsson,  CTO hjá Controlant.
Prófdómari: Jóhann Malmquist, prófessor.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012