Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Meistarafyrirlestur: Magnetorheological Elastomer

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
17. desember 2013 - 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 157
Háskóli Íslands

Fannar Benedikt Guðmundsson flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í vélaverkfræði. Verkefnið ber heitið Magnetorheological Elastomer.

Þessi ritgerð lýsir athugun á því hvort raunhæft sé að nota segulvirka elastómera til þess að gera stífni stoðtækja breytilega. Segulvirkir elastómerar eru samsett efni þar sem segulvirkar agnir eru blandaðar út í ósegulvirkt burðarefni. Þeir hafa þann eiginleika að geta breytt stífni sinni séu þeir bornir undir segulsvið. Sérstaklega er litið til notkunar á segulvirkum elastómerum í gervifótum. Gervifætur eru almennt framleiddir misstír eftir þyngd notandans og virkni í daglegu lífi en fýsilegt þykir að geta framleitt fót sem hefur stýranlega stífni. Aðferðir við framleiðslu segulvirkra elastómera eru kannaðar ásamt því hvernig mæla má stífni þeirra með og án segulsviðs. Sýni eru framleidd og stífnieiginleikar þeirra mældir með sérsmíðuðum búnaði. Frumgerð gormbúnaðar með segulvirkum elastómer er hönnuð og smíðuð með tilliti til þeirrar stífni sem búnaðurinn þarf að hafa með og án segulsviðs auk þeirra færslna sem búast má við í gervifótum. Slíkur búnaður er talinn hafa notkunarmöguleika í stoðtækjum þar sem hægt verður að stýra stífni þeirra í rauntíma.

Leiðbeinendur: Fjóla Jónsdóttir, prófessor og Christophe Lecomte hjá Össur.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012