Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Súrefnis- og kolefnisbúskapur Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
30. maí 2016 - 10:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Stofa 130
Háskóli Íslands

Sindri Snær Jónsson flytur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í jarðvísindum. Heiti verkefnisins er Súrefnis- og kolefnisbúskapur Jökulsárlóns á Breiðamerkursandi. 

Ágrip

Við rætur Breiðamerkurjökuls hefur á síðustu áratugum myndast gríðarstórt sporðslón. Þekkt á heimsvísu fyrir einstaka náttúrufegurð og á skömmum tíma orðinn einn helsti ferðamannastaður landsins, en talið er að einn þriðji allra ferðamanna heimsæki Jökulsárlón. Lónið er orðið 8 km að lengd og hefur vaxið hratt á síðustu árum og er nú orðið dýpsta stöðuvatn landsins. Lónið hefur þá sérstöðu að í það renna þrjár tegundir vatns, hlýr sjór flæðir inn um Jökulsá með sjávarföllunum, jökulá rennur undan jöklinum i lónið og svo bráðnar ís í lónið en stöðugt kelfir í lónið af Breiðamerkurjökli. Hlýr sjórinn er súrefnisríkur og eðlisþyngri en vatnið sem til staðar í lóninu og sekkur því til botns. Þaðan ferðast sjórinn í átt að jöklinum, kólnar og rís upp súrefnisminni og blandast yfirborðinu. Þaðan ferðast hann í átt til sjávar og klárar hringrás sína um lónið. Alla tíð hafa verið stundaðar rannsóknir á jöklum Íslands og núna á tímum hnattrænnar hlýnunar hafa þær aukist til muna. Þetta verkefni er mat á kolefnis- og súrefnisbúskap Jökulsárlóns, hvað verður um innflæði sjávar við komu í lónið og hvaða áhrif innflæðið hefur á vistkerfi lónsins. Verkefnið byggir á efnagreiningum á sýnum úr leiðöngrum farnir snemma sumars og byrjun vetrar árið 2015. Það er framlag til stærri rannsókna Vegagerðinnar og Háskóla Íslands um þróun Jökulsárlóns á síðustu áratugum sem og þeim næstu og hvort að skerast þurfi í leikinn.

Leiðbeinendur: Jón Ólafsson og Helgi Björnsson
Prófdómari: Þórarinn Sveinn Arnarson


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012