Hvenær hefst þessi viðburður:
5. desember 2013 - 12:00 til 12:40
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
stofa 343

Dr. Ívar Meyvantsson heldur fyrirlestur um Örtækni í lífvísindumí Málstofu Lífvísindaseturs 5. desember kl. 12:00 í stofu 343, Læknagarði.
Örtækni hefur verið hagnýtt á marga mismunandi vegu í lífvísindum - allt frá raðgreiningartækni til smásjármyndatöku heilla lífvera. Í erindinu verður farið lauslega yfir nokkur dæmi um slík not og síðan skýrt frá þróun örstreymistóls (e. microfluidic device) til svipgerðarskimunar lyfjakandídata. Þetta tól gerir kleift að skoða útlit fruma á meðan frumufar stendur yfir og var notað til greiningar á tveimur þekktum lífvirkum sameindum.
Nánar um erindið á vefsíðu Lífvísindaseturs
Nánar um dagskrá málstofu Lífvísindaseturs haustið 2013