Hvenær hefst þessi viðburður:
5. apríl 2016 - 16:00 til 18:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Litla torg
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Clik here to view.

Grunnnám - Hvað svo?
Hvað er í boði í Háskóla Íslands að loknu grunnnámi?
Getur nemandi með BA-gráðu í mannfræði farið í talmeinafræði?
Getur nemandi með BS-gráðu í hjúkrunarfræði farið í framhaldsnám í guðfræði?
Getur nemandi með BS-gráðu í tölvunarfræði farið í framhaldsnám í leikskólakennarafræði?
Hverjar eru forkröfurnar fyrir hverja og eina námsleið í framhaldsnámi við Háskóla Íslands?
Sérfræðingar deilda og fræðasviða Háskóla Íslands veita svör við þessum spurningum og ótal fleiri á Litla-Torgi þriðjudaginn 5. apríl milli kl. 16 og 18.
Viðburðurinn er ætlaður öllum þeim sem hyggja á framhaldsnám í Háskóla Íslands.
Komdu og kynntu þér ótal möguleika á framhaldsnámi.