Hvenær hefst þessi viðburður:
17. mars 2016 - 15:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Stofa 229

Fimmtudaginn 17. mars heldur Jónas Elíasson verkfræðiprófessor fyrirlestur á vegum Trúarbragðfræðistofu um þróun kirkjuvalds og siðferðisgrundvöll samfélagsins.
Fyrirlesturinn verður í stofu 229 í Aðalbyggingu háskólans og hefst kl. 15.00. Allir velkomnir.
Jónas hefur undanfarin ár sinnt almennum trúarbragðafræðum og birt greinar í tímaritum um þau efni, td. um vatnafræði og trúarbrögð Forn-Egypta. Í fyrirlestri sínum á fimmtudaginn kynnir hann grein um efnið sem hann birti í fyrra ásamt Pétri Péturssyni prófessor í kennimannlegri guðfræði í tímaritinu International Journal of Humanites and Social Science Invention.