Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Dagar mínir í geiminum – Danski geimfarinn Andreas Mogensen

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
18. mars 2016 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
Hátíðasalur
Andreas Mogensen
Daninn Andreas Mogensen flytur erindi um geimferðir og för sína í Alþjóðlegu geimstöðina í Hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 18. mars kl. 12-13.
 
Mogensen varð á síðasta ári fyrstur Dana til þess að ferðast til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Evrópska geimferðastofnunin (ESA) valdi hann til þátttöku í geimferðaáætlun sinni árið 2009 og eftir áralanga þjálfun hélt hann loks í geimstöðina 2. september 2015 um borð í Soyuz TMA-18. Mogensen dvaldi tíu daga í geimstöðinni við ýmis verkefni.
 
Mogensen er staddur hér á landi á vegum kvikmyndagerðarmanna sem vinna að heimildamyndinni Tilgangur lífsinsí leikstjórn Portúgalans Miguel Gonçalves Mendes, en þess má geta að tónlistarmaðurinn Hilmar Örn Hilmarsson kemur þar einnig við sögu. Í myndinni fylgja kvikmyndagerðarmennirnir m.a. Mogensen eftir í gegnum stranga þjálfun fyrir förina út í geiminn en þjálfunin fór fram víða um heim, þar á meðal í Japan, Bandaríkjunum og Kasakstan. Tökur fyrir myndina fara fram hér á landi m.a. vegna þess að það hefur lengi verið draumur Mogensens að sjá norðurljósin.
 
Andreas Mogensen er með doktorsgráðu í geimverkfræði frá Háskólanum í Texas í Bandaríkjunum. Hann býr nú og starfar í Köln í Þýskalandi.
 
Í fyrirlestrinum í Hátíðasal Háskóla Íslands þann 18. mars mun Mogensen fjalla um geimferðir og ferð sína í Alþjóðlegu geimstöðina en jafnframt gefst gestum færi á að spyrja hann um förina. Fyrirlesturinn verður á ensku og er öllum opinn.
 
Fundarstjóri verður Kristinn Andersen, prófessor við Rafmagns- og tölvuverkfræðideild Háskóla Íslands.
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012