Hvenær hefst þessi viðburður:
19. mars 2016 - 10:00

Fyrra Aðgangsprófið fyrir háskólastig (A-prófið), sem haldið verður á þessu ári, fer fram laugardaginn 19. mars 2016. Prófinu er ætlað að spá fyrir um námsárangur stúdenta við háskóla. Fjórar deildir innan Háskóla Íslands munu nota A-próf til að taka inn nemendur haustið 2016: Lagadeild, Hjúkrunarfræðideild, Hagfræðideild og Læknadeild. Tvær þær síðastnefndu nota einnig frekari próf til inntöku nema.