Hvenær hefst þessi viðburður:
29. febrúar 2016 - 13:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
HT-300

Kynningarfundur um Karlsháskóla í Prag
Mánudaginn 29. febrúar nk. mun starfsfólk frá Karlsháskóla í Prag vera með kynningu um skólann í fundarherbergi 300 á Háskólatorgi. Starfsemi skólans verður kynnt og jafnframt veittar upplýsingar um nám, styrkleika skólans í rannsóknum og um evrópumiðstöð skólans. Þá verður fjallað um núverandi samstarf milli Háskóla Íslands og Karlsháskóla. Stúdentar sem hafa áhuga á að dvelja um tíma við nám við Karlsháskóla eru hvattir til að mæta. Eins eru starfsmenn skólans sem áhuga hafa á rannsóknasamstarfi sérstaklega hvattir til að mæta.
Heimasíða skólans er: http://www.cuni.cz/UKENG-1.html