
RASK, Rannsóknarstofa um skapandi skólastarf, Rannsóknastofa um starfendarannsóknir og Rannsóknarstofa um listkennslu við LHÍ efna til ráðstefnu um sköpun í skólastarfi, fimmtudaginn 17. mars 2016.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Andrew J. Kempe prófessor við Universitiy of Reading. Fyrirlestur hans heitir: „Teaching Creatively to teach creativity“.
Að honum loknum verða 90 mínútna málstofur með þremur erindum hver. Hver flytjandi hefur 30 mínútur til umráða og ákveður hvernig hann ráðstafar þeim.
Um ráðstefnuna
Markmið ráðstefnunnar er að skapa vettvang fyrir málefnalega umræðu um sköpun og hvernig hægt er að efla þann grunnþátt í menntun. Á ráðstefnunni er rannsakendum, kennurum og áhugafólki um sköpun í skólastarfi gefið tækifæri til að kynna rannsóknir og verkefni sem tengjast sköpun og skólastarfi.
Skilafrestur ágripa er 20. febrúar.