Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Arfurinn eftir Simone de Beauvoir:Pólitísk vitundarvakning og femínískar þversagnir

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
25. febrúar 2016 - 12:00 til 13:00
Staðsetning viðburðar: 
Nánari staðsetning: 
stofa 129
Háskóli Íslands

Í erindinu er sjónum beint að tveimur alþjóðlegum viðburðum sem voru kenndir við almenningsréttarhöld  (e. people‘s tribunal). Fyrri viðburðurinn Crimes against Women var haldinn árið 1976 og hinn seinni Vienna Tribunal for Woman‘s Human Rights 1993 og markaði upphafið að mannréttindaorðræðu í alþjóðlegum femínískum aktívisma. Í erindinu eru ofangreindir atburðir settir í samhengi við þá gerjun sem átti sér stað í femínískum fræðum á þeim tíma, einkum og sér í lagi mismunandi túlkanir á kenningum franska rithöfundarins og heimspekingsins Simone de Beauvoir og Marxisma.

Erindið er byggt á doktorsritgerð Valgerðar Pálmadóttir í hugmyndasögu sem hún vinnur við háskólann í Umeå í Svíþjóð. Valgerður útskrifaðist með BA-gráðu í heimspeki og félagsfræði frá Háskóla Íslands árið 2007 og fór þaðan til Gautaborgar að læra hugmyndasögu og útskrifaðist með meistaragráðu frá Gautaborgarháskóla árið 2010.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012