Hvenær hefst þessi viðburður:
25. febrúar 2016 - 12:20 til 13:00
Staðsetning viðburðar:
Nánari staðsetning:
Keldur - bókasafn

Fyrirlesari: Sigríður Hjartardóttir, líffræðingur á Keldum.
Vegna aukningar á tíðni sjúkdóma af völdum sporð- og uggarotsbaktería í fiskeldi á Íslandi var sótt um styrk til AVS rannsóknasjóðs í sjávarútvegi til þess að hægt væri að kanna eðli vandans. Síðastliðin tvö ár hafa miðað að því að leita að sjúkdómsvöldum á eldisbæjum, einangra þá með ræktun og greina til tegunda auk þess sem leitað hefur verið hugsanlegra smitleiða. Nokkrar áhugaverðar niðurstöður liggja nú þegar fyrir og verða þær kynntar í erindinu.