Hvenær hefst þessi viðburður:
4. desember 2013 - 20:00
Nánari staðsetning:
Hljóðbergi í Hannesarholti, Grundarstíg 10

Félag íslenskra fræða býður til skáldaskrafs á aðventu. Tveir rithöfundar mæta til leiks, lesa úr nýútkomnum bókum og spjalla við viðstadda. Gestir kvöldins eru Eiríkur Guðmundsson (höfundur skáldsögunnar 1983) og Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir (höfundur skáldættarsögunnar Stúlka með maga). Mörk skáldskapar, endurminninga, sjálfslýsinga og ættarsagna verða í brennidepli.
Allir velkomnir.