Quantcast
Channel: Viðburðir við HÍ - Events at the University of Iceland
Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012

Með fróðleik í fararnesti - Sveppaferð í Heiðmörk

$
0
0
Hvenær hefst þessi viðburður: 
31. ágúst 2013 - 11:00
Nánari staðsetning: 
Lagt af stað frá bílastæðinu við Rauðhóla

Gísli Már Gíslason, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, leiðir sveppaferð í Heiðmörk í samvinnu við fararstjóra Ferðafélags Íslands. Sveppum verður safnað og fræðst um þá og verkun þeirra. Hvaða sveppi má borða og hverjir eru eitraðir? Hist verður á bílastæðinu við Rauðhóla kl. 11, þaðan sem ekið er í lest inn í Heiðmörkina. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér sveppabækur og ílát fyrir sveppina. Ferðin er farin í samvinnu við Ferðafélag barnanna.

Háskóli Íslands og Ferðafélag Íslands halda áfram samstarfi sínu um fræðandi gönguferðir sem hófust á aldarafmæli skólans 2011. Reynsla og þekking fararstjóra Ferðafélagsins og þekking kennara og vísindamanna Háskóla Íslands blandast saman í áhugaverðum gönguferðum um höfuðborgarsvæðið og næsta nágrenni þess og taka flestar um tvær klukkustundir. Þátttaka er ókeypis og allir eru velkomnir.

_______________________________________

Næsta ferð:
 
21. september kl. 11 – Laufey Steingrímsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, Guðrún Hallgrímsdóttir matvælaverkfræðingur og Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur leiða gönguferð þar sem matur, saga og menning verða meginefnið.
 

Viewing all articles
Browse latest Browse all 3012